Jump to:
Afkoma Marel 2F 2022
Allar upphæðir eru í evrum
Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs 2022 (2F22)
- Met í mótteknum pöntunum þriðja ársfjórðunginn í röð. Pantanabók og pípan af nýjum verkefnum sterk, drifin áfram af nýsköpun og aukinni nálægð við viðskiptavini.
- Rekstrarframlegð undir væntingum, aukinn rekstrarkostnaður vegna hárrar verðbólgu og áskorana tengdum aðfangakeðju ásamt hægari tekjuvexti en vænt var.
- Markmið um EBIT framlegð endurskoðuð í 14-16% í lok árs 2023 í stað 16% áður, í ljósi umróts í aðfangakeðjum og alþjóðlegu efnahagsumhverfi.
- Gert er ráð fyrir bættri rekstrarafkomu á síðari helmingi ársins. Til að lækka kostnað hefur sú ákvörðun verið tekin að fækka starfsmönnum félagsins um 5% á heimsvísu, auk þess sem ráðist hefur verið í aðgerðir til að draga úr töfum í aðfangakeðju. Hærri tekjuvöxtur og virk verðstýring á vörum Marel munu leiða til betri kostnaðarþekju á næstu ársfjórðungum.
- Pantanir námu 471,8 milljónum evra (1F22: 421,7m, 2F21: 371,3m).
- Pantanabókin stóð í 774,5 milljónum evra (1F22: 619,1m, 2F21: 499,1m).
- Tekjur námu 397,3 milljónum evra (1F22: 371,6m, 2F21: 327,5m).
- EBIT1nam 25,0 milljónum evra (1F22: 31,3m, 2F21: 38,6m), sem var 6,3% af tekjum (1F22: 8,4%, 2F21: 11,8%), jákvæð áhrif af yfirtökum í fjórðungnum.
- Kaupin á Wenger og Sleegers höfðu jákvæð áhrif á mótteknar pantanir í fjórðungnum (16,9 milljónir evra), tekjur (12,7 milljónir evra) og pantanabók (80,9 milljónir evra).
- Hagnaður nam 9,6 milljónum evra (1F22: 21,7m, 2F21: 23,3m).
- Hagnaður á hlut (EPS) var 1,27 evru sent (1F22: 2,87 evru sent, 2F21: 3,14 evru sent).
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 18,4 milljónum evra (1F22: 32,7m, 2F21: 77,9m).
- Frjálst sjóðstreymi var neikvætt sem nam 7,9 milljónum evra (1F22: 14,6m, 2F21: 54,6m), vegna lægri EBITDA framlegðar og uppbyggingu birgða.
- Skuldahlutfall (nettó skuldir/EBITDA2) var 3,8x í lok júní (1F22: 1,2x, 2F21: 0,8x), eftir kaupin á Wenger. Áhersla lögð á að ná aftur markmiði félagsins um fjármagnsskipan sem er að halda skuldahlutfalli milli 2-3x nettó skuldir/EBITDA.
Hálfsársuppgjör 2022 (2H22)
- Pantanir námu 893,5 milljónum evra (1H21: 740,7m).
- Tekjur námu 768,9 milljónum evra (1H21: 661,5m).
- EBIT1 nam 56,3 milljónum evra (1H21: 76,6m), sem var 7,3% af tekjum (1H21: 11,6%).
- Hagnaður nam 31,3 milljónum evra (1H21: 44,5m).
- Hagnaður á hlut (EPS) var 4,14 evru sent (1H21: 5,95 evru sent).
- Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 51,1 milljónum evra (1H21: 138,1m).
- Frjálst sjóðstreymi nam 6,7 milljónum evra (1H21: 100,1m).
Ítarlegri umfjöllun um rekstur og afkomu félagsins má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningarinnar (íslenska útgáfan veitir aðeins yfirlit yfir helstu þætti uppgjörsins, horfur, fjárfestafund og fjárhagsdagatal).
1 Rekstrarniðurstaða aðlöguð fyrir afskrift á óefnislegum eignum sem tengjast yfirtökum (PPA) og fyrir kostnaði tengdum yfirtökum.
2 Nettó skuldir (þar með taldar leiguskuldbindingar) / Pro-forma EBITDA sl. 12 mánaða.
Úr nýjasta uppgjöri
2F 2022 lykiltölur
Met í pöntunum, EBIT framlegð undir væntingum, verð- og kostnaðaraðgerðir til að bæta rekstrarafkomu komnar til framkvæmda.
397,3m
Tekjur í evrum
25,0m
Aðlagað EBIT í evrum
471,8m
Pantanir í evrum
774,5m
Pantanabók í evrum
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
„Viðburðaríkur ársfjórðungur er að baki þar sem við sjáum ný met í pöntunum sem koma inn á hærri verðum en áður sem styður við markmið um aukna framlegð á næstu fjórðungum. Pantanir námu 472 milljónum evra, á sama tíma eru 397 milljónir evra í tekjur með 6,3% EBIT framlegð sem er óviðunandi.
Eins og fram kom í tilkynningu okkar til kauphallar í síðustu viku, höfum við þegar gripið til aðgerða til að lækka kostnaðargrunn félagins með 5% fækkun starfsfólks. Ákvörðun sem þessi er alltaf erfið og við munum gera okkar besta til að styðja við þá starfsmenn sem frá hverfa.
Í núverandi umhverfi verðbólgu, skorts á hæfu vinnuafli og síbreytilegrar kauphegðunar á matvælum er Marel í einstakri stöðu til að styðja við matvælaiðnaðinn með hátækni- og hugbúnaðarlausnum sem leiða til meiri sjálfvirkni, öryggis og rekjanleika. Við höfum staðið við markmið okkar um stöðuga nýsköpun, frá ári til árs, og tókum meðvitaða ákvörðun í miðjum heimsfaraldri um að færa okkur nær viðskiptavinum okkar um heim allan með fjölgun starfsmanna í sölu- og þjónustu. Sömuleiðis höfum við lagt áherslu á að hitta fjölmarga viðskiptavini okkar á stærstu vörusýningum fyrir alifugla-, kjöt og fiskiðnaði í fjórðungnum og undirstrika leiðandi stöðu okkar á markaðnum með því að kynna til leiks yfir 25 nýjar hátæknilausnir. Sölu- og markaðskostnaður í fjórðungnum var því hár, eða 14% af tekjum en mun færast aftur í átt að 12% markmiði okkar.
Við höfum hækkað verð á undanförnum fjórðungum. Eftir á að hyggja vorum við of sein að hækka verð þegar verðbólgan fór af stað á síðasta ári. Engu að síður endurspegla metpantanir nú, sem komu inn á nýrri verðlagningu, og áframhaldandi eftirspurn hversu sterkt vörumerki Marel er. Samkeppnisstaða félagsins er sterk í umhverfi lituðu af hækkandi verðbólgu sem knýr áfram spurn eftir frekari sjálfvirknivæðingu og sjálfbærri nýtingu hráefna.
Í ljósi umróts í aðfangakeðjum og alþjóðlegu efnahagsumhverfi höfum við endurskoðað markmið okkar um EBIT framlegð í 14-16% í lok árs 2023 í stað 16% áður. Aðgerðaáætlun um virka verðstýringu, bætta framleiðni og skilvirkni í innkaupum er komin í framkvæmd. Virk verðstýring, að meðtöldum þegar fram komnum verðhækkunum, mun styðja við hækkun á tekjugrunni. Við vinnum nú að endurbótum á rekstrarmódeli okkar til að gera okkur enn betur í stakk búin að skapa sveigjanlegan vaxtargrundvöll með sjálfbærum kostnaðargrunni. Þetta felur í sér þegar tilkynntar fjárfestingar í sjálfvirkni og stafrænum lausnum í framleiðslu okkar, aðfangakeðju og þjónustu auk áframhaldandi hagræðingar á stoðsviðum. Hækkun framlegðar til skemmri tíma og sterkt sjóðstreymi gegna lykilhlutverki til þess að styðja við metnaðarfull markmið okkar um að geta boðið heildarlausnir á þessum ört vaxandi markaði, auk þess að styðja við markmið um að 50% af heildartekjum komi frá þjónustu og hugbúnaði.
Ný stoð bættist við með kaupunum á Wenger sem er leiðandi fyrirtæki í lausnum og þjónustu fyrir framleiðendur á matvælum fyrir gæludýr, fóðri fyrir fiskeldi og markaðsaðila sem eru að hasla sér völl á ört vaxandi neytendavörumarkaði með afurðir úr plöntupróteinum. Frá og með þriðja ársfjórðungi verða því fjórar stoðir í rekstrarmódeli Marel. Áætlað er að kaupin muni hafa jákvæð áhrif á bæði framlegð og hagnað."
Horfur
Marel hefur endurskoðað markmið um EBIT framlegð í 14-16% í lok árs 2023 í stað 16% áður, í ljósi umróts í aðfangakeðjum og alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Marel stendur að öðru leyti við vaxtarmarkmið sín til meðallangs- og langs tíma. Marel stefnir að um 40% framlegð (e. gross profit), 18% sölu-, markaðs- og stjórnunarkostnaði og 6% þróunarkostnaði, fyrir árslok 2023.
Markaðsaðstæður eru áfram krefjandi í ljósi áskorana tengdum aðfangakeðju og hárrar verðbólgu sem hafa leitt til óhagkvæmni í framleiðslu og þjónustu og hærri kostnaðar vegna afhendinga. Á síðari helmingi ársins, gerir Marel ráð fyrir auknum tekjum og bættri rekstrarafkomu með sterkri stöðu pantanabókar og virkri verðstýringu á vörum sem mun leiða til betri kostnaðarþekju á nýjum pöntunum. Marel hefur merkt aukna spurn eftir hátækni- og hugbúnaðarlausnum og þjónustu í matvælaiðnaðinum þar sem aukin áhersla er á sjálfvirkni, róbótatækni og stafrænar lausnir við framleiðslu, og tryggja þannig örugg matvæli sem unnin eru á sjálfbæran hátt.
Marel stefnir að 12% meðalvexti árlega yfir tímabilið 2017-2026 sem byggir á öflugri markaðssókn og nýsköpun, samstarfi við lykilaðila og yfirtökum á fyrirtækjum.
- Gera má ráð fyrir að áframhaldandi traustur rekstur og sterkt sjóðstreymi geti stutt við 5-7% ytri meðalvöxt á ári.
- Marel gerir ráð fyrir að almennur markaðsvöxtur nemi 4-6% til lengri tíma. Með sterkri markaðssókn og nýsköpun stefnir Marel að innri vexti umfram almennan markaðsvöxt.
- Á undanförnum fimm árum hefur vöxtur markaða verið undir lengri tíma markaðsvexti. Gert er ráð fyrir að vöxtur á fimm ára tímabili (2021-2026) verði 6-8% í ljósi uppsafnaðrar fjárfestingarþarfar og hröðun eftirspurnar í kjölfar heimsfaraldurs.
- Marel gerir ráð fyrir að hagnaður á hlut vaxi hraðar en tekjur.
- Marel gerir ráð fyrir að stöðugar tekjur frá þjónustu, varahlutum og hugbúnaði muni nema um 50% af heildartekjum félagsins í árslok 2026.
Áætlaður vöxtur er háður hagsveiflum og þeim tækifærum sem eru í boði hverju sinni og því má gera ráð fyrir að hann verði ekki línulegur. Reikna má með breytilegri afkomu á milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar, sveifla í pöntunum og tímasetningu stærri verkefna.
Gert er ráð fyrir að fjárfestingar í rekstrarfjármunum, að frátöldum nýsköpunarverkefnum, muni aukast í að meðaltali 4-5% af tekjum á tímabilinu 2021-2026, en fari svo aftur í eðlilegra horf.
Afkomuefni
Ítarlegri umfjöllun um rekstrarafkomu má finna í enskri útgáfu fréttatilkynningar sem er í viðhengi. Sé misræmi á milli uppgjörstilkynninga félagsins á íslensku annars vegar og ensku hins vegar, skal enska útgáfan gilda þar sem tilkynningar eru þýddar af ensku yfir á íslensku.
Rafrænn afkomufundur með markaðsaðilum
Fimmtudaginn 28. júlí 2022 kl. 8:30 verður haldinn afkomufundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Fundurinn verður eingöngu rafrænn en þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á öðrum ársfjórðungi.
Fundinum verður vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
- IS: +354 800 7437 (PIN 65276904#)
- NL: +31 10 712 9162
- UK: +44 33 3300 9034
- US: +1 631 913 1422 (PIN 65276904#)
Fjárhagsdagatal
- 3F 2022 – 2. nóvember 2022
- 4F 2022 – 8. febrúar 2023
- AGM – 22. mars 2023
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa 7.000+ manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Marel velti um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af veltu í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan árið 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Hafa samband
Nánari upplýsingar veita Fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið IR@marel.com og í síma 563 8001.
Tinna Molphy
Marino Thor Jakobsson
Get in touch
Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you.